Archive for the ‘Advertising’ Category

Myndmál Nýrra tíma

Wednesday, October 29th, 2008

Til aðstandenda og skipuleggjenda Nýrra tíma:Andri Sigurðsson, Birgir Þórisson, Cilla Ragnarsdóttir, Guðmundur Hallgrímsson (Mundi vondi), Hörður Torfason, Jóhann Þröstur Pálmason, Kolfinna Baldvinsdóttir, Lukka Sigurðardóttir, Orri Páll Dýrason, Sara María Eyþórsdóttir og Snorri Ásmundsson.MYNDMÁL FASISMANSLitir Hitlers og nasista, blóðugrar byltingar, tilvísun í tákni til hakakrossins, skálínur byltingarinnar og hugmyndakúgunar, brottnám himinblámans úr íslenska fánanum, hnefar á lofti …Er ykkur alvara með þessu myndmáli? Eruð þið blind? Eða er þetta enn einn misvitur brandarinn?Það getur meira en verið að það sé fátt mikilvægara fyrir lýðveldið Ísland að kosningar fari fram strax. Að lýðræðið sé virkjað að nýju af krafti. Og víst hefur fólk þörf fyrir að koma saman og lýsa óánægju sinni við kjörna fulltrúa sína á þingi – og krefjast svara, opna umræðuna um framtíð lands og þjóðar.En ég vara við því að ana af stað í það ferli með myndskilaboð eins og þessi í farteskinu!Myndmál er tungumál sem allir skilja; fólk les og túlkar myndir mun auðveldlegar en það gerir sér sjálft grein fyrir. Sjálf er ég vel myndlæs og vil vara ykkur (aftur) eindregið við!Myndmálið sem þið notið til að hvetja fólk til að fylkja sér um og ganga kröfugöngu undir má auðveldlega skilja svona:Við erum ofbeldissinnar og æðum fram á völlinn undir merkjum fasismans, blóðrauðrar byltingar, ofbeldis og svartnættis. Við ætlum að taka völdin í krafti hnefaréttarins og fjöldans. Við gefum skít í lýðræðið. Okkar skoðun er sú eina rétta – ef þú hefur ekki nákvæmlega sömu skoðanir þá ert þú ekki með í okkar liði. Við völtum yfir þig.–Nú vill svo til að ég veit hver þið eruð. Í sumum tilfellum þekki ég til ykkar. Þess vegna geri ég fastlega ráð fyrir því að hér sé um vanhugsað verk að ræða.En áttið ykkur á því að nú liggur mikið við – í fúlustu alvöru – og það fólk sem tekur að sér það verkefni að tjá hugmyndir Nýrra tíma, með orðum, myndum eða verkum, VERÐUR að stíga varlega til jarðar.–Sagan stendur okkur nærri í dag. Nú er umrót um allan heim og mikilvægar en nokkru sinni á okkar tímum að standa vörð um þau gildi sem mest varða.Myndir segja sannarlega meira en þúsund orð. Ekki bulla í myndmálinu þótt réttlát reiðin yfir því hvernig komið er kraumi.Kapp er best með forsjá. Við skulum ekki láta það henda okkur að gleyma því í tilfinningahitanum.Þróun myndmáls nýrra tíma úr fasisma yfir í þjóðernishyggju með ívafi:Myndmál Nýrra tíma

Auglýst eftir óviðeigandi markaðsefni í kreppu

Saturday, October 18th, 2008

Já, ég s.s. auglýsi eftir auglýsingum og öðru slíku sem er óviðeigandi af hálfu fyrirtækja að birta í kreppu. Þá á ég við bæði beinan dónaskap gagnvart „neytendum“ og líka bara svona klúðurslegu dóti sem einhvern veginn hefur skipt um merkingu eftir að góðærið fór.

Endilega sendið mér efni og ég skal a.m.k. leggja mitt af mörkum til að sýna stjórnendum fyrirtækja fram á að  það sé hæpin hugmynd að birta bara það sem er til.

Mig grunar að dæmin séu ófá og að e.t.v. átti óttaslegið fólk sig ekki á fórnarkostnaðinum við að halda áfram að birta markaðsefni sem er skrifað og hannað fyrir velmegunargrísi.

Þetta verður allavega skemmtileg æfing ef þið eruð til … 

Auglýsingastofur / hönnunarstofur athugið!

Friday, October 10th, 2008

Nú er uppi fótur og fit;
Komin kreppa og fréttir berast af þrengingum á stofum landsins. 

Mig langar að segja hér nokkur varnaðarorð til bransans. Ég læt bara vaða og vona að enginn verði feiminn við að rengja mig eða skamma ef þörf þykir.

Þegar harðnar á dalnum (sem gerist fljótt í okkar fagi ef kreppir að) er alltaf stutt í að fyrirtæki dragi saman í markaðsstarfi – það er auðvitað vanhugsað og skammsýnt en líka skiljanlegt hræðsluviðbragð. Skelkað fólk á gjarnan erfitt með að hugsa skýrt.

Í kreppunni leynast tækifæri. Kreppa er skapandi ástand. Neyðin kennir naktri konu … Því má ekki gleyma.

Samkeppni á markaði er aldrei meiri en þegar fólk þarf að hugsa það í hvað það notar peningana sína. Fólk (neytendur) hættir ekki að kaupa það sem það þarf þó að minna fé sé milli handanna. Það bara vandar valið betur. Ættu fyrirtæki þá ekki að vilja auglýsa sín gæði og passa betur en nokkru sinni fyrr að þeirra vara / þjónusta gleymist ekki?

Um þetta eru til lærðar greinar í bunkum og þetta eiga auglýsingastofur og skyld fyrirtæki að útlista fyrir sínum viðskiptavinum núna!

Og hvað á ekki að gera?

Það á ekki að bugast fyrirfram og segja góðu starfsfólki upp baráttulaust.Hollusta auglýsingastofa við starfsfólk er fræg að endemum. Venjan er að segja upp starfsfólki nokkurn veginn um leið og hillir undir að viðskiptavinir séu líklegir til að draga saman. Fólki er sagt upp þegar samdráttur verður; viðskiptavinur skiptir um stofu – hvað þá í raunverulegri kreppu og líklega (án þess að ég hafi neitt fyrir mér annað en sögusagnir og örfá staðfest dæmi) má búast við að stofurnar séu flestar ef ekki allar að segja upp fólki í stórum stíl núna.

En hér er hugmynd:
EKKI segja góðu starfsfólki upp ef einhver annar kostur er.

– Það er hægt að setja á yfirvinnubann.
– Það er hægt að lækka starfshlutfall.
– Það er jafnvel hægt að semja um launa lækkun.
– Það er hægt að draga saman seglin og minnka fríðindi og bitlinga.
– Það er hægt að kaupa ódýrara kaffi …
– Það er a.m.k. hægt að bjóða uppá verktakasamning og sameiginlegt húsnæði.
– Og síðast en ekki síst; það er hægt að BÚA TIL verkefni.

Og afhverju ætti stofan og „hitt“ starfsfólkið að leggja ofangreint á sig til að þurfi ekki að koma til umtalsverðra uppsagna?

Jú. Fyrir heildina! þ.e. allar stofurnar, allt starfsfólkið á þeim, þróun þess starfs sem fer fram á stofunum, þekkinguna sem þar er uppsöfnuð. Starfssemi stofanna hefur alltof oft skerst til lengri tíma vegna þess að hræðsluviðbrögðin og úrræðaleysið ræður ferðinni þegar bjátar á.

Auglýsingafólk talar fjálglega við viðskiptavini sína um innri markaðssetningu, mikilvægi orðspors fyrirtækja, að starfsmenn skipti mestu máli þegar kemur að umfjöllun um fyrirtæki í fermingarveislum og öðrum partýum – en við virðumst ekki geta yfirfært þekkinguna og hugmyndirnar yfir á eigin rekstur.

Nú er mikið rætt um það í þjóðfélaginu að samstaða, samúð og samvinna skipti öllu máli – þetta eru yfirvöld að segja og kannski er í því sannleikskorn (þó það sé augljóslega líka verið að koma í veg fyrir „panic“). Staðan virðist allavega vera slík að sökkvi margir þá sökkvi allir, a.m.k. upp að nefi.

Starfsfólk á stofu sem er sagt upp núna fer beint í samkeppni við sinn fyrrum vinnustað og reynir að afla sér sjálfstæðra verkefna. Sumir blómstra þannig. En stofurnar blómstra ekki þegar einyrkjar undirbjóða stofurnar og þekkingin og reynslan sundrast. Einyrkjar taka sig svo gjarnan saman og stofna ný fyrirtæki í harðri samkeppni við fyrrum atvinnurekendur sína. En aðalatriði er að gæði markaðsstarfs minnka verulega þegar auglýsingafólk hefur verið rekið eitt út í horn en er samt að störfum.

Nú veit ég vel að stundum nota atvinnurekendur tækifærið við aðstæður eins og þessar til að losa sig við starfsfólk sem ekki er ánægja með – og kannski er það bara allt í lagi – en auglýsingabransinn hlýtur að vera orðinn nægilega þroskaður núna til að hægt sé að reikna dæmið til enda og t.d. taka með í reikninginn hollustu viðskiptavina við einstaka starfsmenn; spyrja sig að því hvort að starfsfólkið hafi viðskiptavildina eða fyrirtækið. Hvort fyrirtækið hafi efni á að missa starfsfólkið. Og jafnvel bara standa með sínum AF ÞVÍ ÞAÐ ER MIKLU FLOTTARA og þannig fer af stofunni betra orð og aldrei að vita nema fullyrðingar í góðæri um að á stofunum sé geysilegt hugvit að finna séu sannar.

Auglýsingafólk er miklu betra saman en sundur og kann sérstaklega vel að vinna saman og búa til verðmæti. Afhverju ekki að láta á það reyna? Getur staðan raunverulega versnað mikið við það?