Ég er grafískur hönnuður og er tilbúin að vinna þannig verkefni í fyrir fé – ást – og listina, uppgjafa(?) myndlistarmaður, ný orðin lagatextahöfundur – ó, það er svo spennandi – og áhugamanneskja um alltof margt. Ég er líka að vinna sem fagstjóri í grafískri hönnun við hönnunar og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands.
Ég skrifa hér stöku sinnum. Ekkert stress. Bara ef mér liggur eitthvað á hjarta og hef tíma til að standa í svona dekri. Ef og þegar ég set eitthvað niður hér geri ég það eingöngu af taumlausri tjáningar- þörf og sjálfsagt af þessari venjulegu og óathyglisverðu athyglissýki.
Og, já, rétt að fram komi að ég kann ennþá ekkert að stjórna útliti eða hegðun svona síðu …