Auglýst eftir óviðeigandi markaðsefni í kreppu
Já, ég s.s. auglýsi eftir auglýsingum og öðru slíku sem er óviðeigandi af hálfu fyrirtækja að birta í kreppu. Þá á ég við bæði beinan dónaskap gagnvart „neytendum“ og líka bara svona klúðurslegu dóti sem einhvern veginn hefur skipt um merkingu eftir að góðærið fór.
Endilega sendið mér efni og ég skal a.m.k. leggja mitt af mörkum til að sýna stjórnendum fyrirtækja fram á að það sé hæpin hugmynd að birta bara það sem er til.
Mig grunar að dæmin séu ófá og að e.t.v. átti óttaslegið fólk sig ekki á fórnarkostnaðinum við að halda áfram að birta markaðsefni sem er skrifað og hannað fyrir velmegunargrísi.
Þetta verður allavega skemmtileg æfing ef þið eruð til …