Hugrekki og framtíðarsýn
Hélt þennan fyrirlestur, á ráðstefnu Hönnunarmiðstöðvar Íslands „Hönnum framtíðina“ undir yfirskriftinni „Hugrekki og framtíðarsýn“.Megin inntakið í fyrirlestrinum er að hönnuðir (og reyndar allt fólk) geti breytt framtíðinni – þrátt fyrir stöðugan hræðsluáróður, reyndar blandaðan hugmyndafræði íslenskra blómabaran a.m.k. í mínu tilfelli – að svo miklu leyti sem hver og einn kýs að hafa fyrir, með því að nýta krafta sína og hæfileika hverjir sem þeir eru, til góðra verka.Ég tel að tækifærin séu mýmörg. Hvert sem litið er eru bæði hlutir, framleiðsla, framleiðsluferli (eða framleiðsluleysi), kerfi og útfærslur á kerfum samfélagsins og strúktúr almennt, sem mætti endurhanna og gera miklu betri. Að sama skapi er hæfileikafólk sem er illa nýtt út um allar jarðir og fólk sem hefur sérþekkingu á ýmsum sviðum – þekkingu sem jafnvel er deyja út, einkum í handverki og iðngreinum – og vannýtt tækifæri vegna þess að ekki er hugsað heilrænt (er það í alvöru orð?). Það er hægt að gera miklu betur með samstarfi fólks sem hefur ólíka þekkingu – þá ekki síst með því að hönnuðir kæmu að verkefnum á miklu, miklu breiðara sviði en nú gerist.Ég lagði líka áherslu á að lífsgæði væru eftirsóknarverðari en vöxtur eða peningalegur gróði fenginn á kostnað a) annars fólks (hvar sem er í heiminum) b) náttúrunnar (allt með talið) c) auðlinda sem ekki eru endurnýjanlegar.Ég átti að vera næst síðust á dagskránni (fyrir utan umræður á eftir) á eftir Össuri Skarphéðinssyni, iðnaðarráðherra – en hann boðaði forföll. Það þótti mér mjög leiðinlegt því ég hafði hugsað mér að tala sérstaklega til Össurar í ljósi þess að hann hefur, eins og sakir standa, mesta möguleika til að bregðast við kalli eftir aukinni þátttöku hönnuða og annarra skapandi stétta í mótun stefnu til framtíðar. Mér finnst heldur ekki vanþörf á að útskýra fyrir stjórnmálamönnum (en ekki bara þeim) hvað hönnun er.Ég kem til með að skutla fyrirlestrinum uppá heimasíðu minni eða hér innan tíðar. Held samt að rétt væri að skrifa einhverjar skýringar við hann fyrst því ég talaði bara frá hjartanu með þeim kostum og göllum sem því fylgja.Ég set hér að neðan myndina „Manifesto“ vegna þess að ég s.s. lagði til að íslenskir hönnuðir settu fram slíka yfirlýsingu og þetta er tillaga þar um – tillaga sem ég geri mér fulla grein fyrir að margir hönnuðir myndu segja að þeir hafi alltaf unnið í samræmi við, alla vega nokkurn veginn – en ég er ekki að leggja til að hönnuðir lýsi slíkri stefnu yfir við sjálfa sig eða aðra hönnuði – heldur við samfélagið og kynni það ráðamönnum formlega ásamt formlegri heimtingu um samstarf um mótun framtíðarsýnar.
Svo hljóðaði auglýsing (á Facebook) um ráðstefnuna:Hönnum framtíðina:Fjallað verður um stöðu hönnunar í því efnahagsástandi sem við búum við í dag. Hvernig getum við sinnt nýsköpun í hönnun og látið hana verða leiðandi afl í uppbyggingu þjóðfélagsins. Við viljum horfa til baka, læra af reynslunni og nota í framtíðaruppbyggingu en ekki hverfa til baka tugi ára í lifnaðarháttum og atvinnuumhverfi.Sverrir Björnsson, Hvíta húsinu:Ekki torfkofann aftur - takk!Sigga Heimisdóttir, hönnuður:Notum sköpunarkraftinn á óvissutímumSteinunn Guðmundsdóttir, arkitekt:Finnska leiðin, hver var hún?Andri Snær Magnason, rithöfundur:Að hanna sér leið gegnum skóginnKatrín Ólafsdóttir, hagfræðingur:Hvaðan kemur hagvöxturinnDóra Ísleifsdóttir, fagstjóri grafískrar hönnunar við Listaháskóla ÍslandsHugrekki og framtíðarsýnIðnaðarráðherra, Össur SkarphéðinssonÞjóðhagslegur ávinningur hönnunarFundarstjóri er Gunnar Hilmarsson, formaður stjórnar Hönnunarmiðstöðvar Íslands